baddikeli.dk

….týndi hlekkurinn

Smá update

 

Þar sem maður hefur verið alveg öfgalatur að skrifa eitthvað hérna, þá er besta að koma með smá update. Sumarið er að verða liðið á ofsahraða og margt brallað.Samt heldur minna en átti að vera vegna hestapestar og ösku. Rekstarferðin datt út, en í staðinn var féð keyrt. Hestaferðin varð að engu, hestarnir enn að jafna sig. Farið var í Húsafell, tjaldað í Tjörvastaðahólma, farið á Shellmót í Eyjum, svo eitthvað sé týnt til. Nýr fjölskyldumeðlimur er væntanlegur núna á næstu dögum og mikil eftirvænting, sérstaklega hjá OI.

Læt mynd úr af flúðunum í Tjörvastaðahólma fylgja með.

Ekkert að minnka

Lítið minnkar gosið í Eyjafjallajökli, núna er bráðnunin mikil við Gígjökul og fer hraunið brátt að renna þar niður.
Eyjafjallajökull

Ljósi strókurinn sýnir hvar hraunið er statt núna, ekki langt eftir niður í lónið.

Lónstæðið breytist mikið dag frá degi, sökum tíðra spýja sem koma vegna bráðnunar. Með öðrum orðum, það er bara mikið í gangi þarna.